Íþróttafélagið Vestri - Vestri
Aðalfundur íþróttafélagsins Vestra 2026 verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl nk. Fundurinn fer fram í Vallarhúsinu á Torfnesi og hefst kl. 18:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
Dagskrá:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
Formaður félagsins gerir grein fyrir starfsemi aðalstjórnar á liðnu starfsári.
Gjaldkeri félagsins leggur fram til samþykktar og gerir grein fyrir reikningum félagsins fyrir liðið starfsár.
Ákvörðun félagsgjalds.
Fjárhagsáætlun félagsins lögð fram til samþykktar.
Lagabreytingar.
Kosningar:
Kosinn formaður.
Kosnir þrír stjórnarmenn til tveggja ára í senn.
Kosnir tveir varamenn til eins árs í senn.
Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.
Önnur mál.
Fundargerð upplesin og fundarslit.
Framboð til formanns aðalstjórnar og almennar tillögur skulu berast aðalstjórn eigi síðar en fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund félagsins á netfangið adalstjorn@vestri.is eða gjaldkeri@vestri.is
Tillögur sem liggja fyrir aðalfundi má finna hér
Vestri fagnaði 10 ára afmæli sínu þann 16. janúar sl. og var m.a. haldið upp á tímamótin með útgáfu sérstaks Vestralags. Einvalalið tónlistarmanna kom að gerð lagsins og má þar fyrst nefna Þormóð Eiríksson sem samdi lagið ásamt Ásgeiri Kristjáni Karlssyni og unnu þeir saman að hljóðblöndun, útsetningu og pródúseringu. Kristján Sturla Bjarnason lagði þeim lið með lúðra, trombone og horn. Flytjandi lagsins er Elvar Orri Palash Arnarsson sem einnig samdi lagatexta ásamt Ásgeiri Kristjáni. Gunnar Dagur hannaði kápu fyrir lagið sem er núna aðgengilegt á Spotify.
Útgáfa Vestralagsins hefði aldrei orðið að veruleika ef ekki hefðu komið til fyrirtæki og einstaklingar sem voru tilbúin að styrkja verkefnið:
Íslenska kalkþörungafélagið
Orkubú Vestfjarða
Verkhaf ehf.
HS Orka
Geirnaglinn ehf.
Ístækni ehf.
Póllinn ehf.
Vestri færir ofantöldum fyrirtækjum og öðrum styrktaraðilum kærar þakkir fyrir stuðninginn!
Hreyfing & fjör er yfirskrift verkefnis á vegum íþróttafélagins Vestra sem hefst 6. mars nk. og er ætlað krökkum í 5. til 10. bekk. Verkefnið, sem er styrkt af íþróttasjóð Rannís, miðar að því að skapa vettvang fyrir börn sem ekki finna sig í hefðbundnu íþróttastarfi og börn sem vilja iðka íþróttir á eigin forsendum án áherslu á keppni eða afreksmiðaðrar þjálfunar.
Æfingar eru gjaldfrjálsar og munu fara fram tvisvar í viku, á mánudögum í íþróttahúsinu við Torfnes milli klukkan 15:00 og 16:00 og á föstudögum í íþróttahúsinu við Austurveg milli klukkan 15:10 og 15:50. Æfingarnar eru iðkendamiðaðar þar sem áhugasvið barnanna fær að ráða för og æfingar eru sniðnar að getu og áhuga iðkenda að hverju sinni. Miðað er að því að þær séu aðgengilegar öllum óháð getu eða fyrri reynslu. Þarna verður veittur stuðningur til að þróa hreyfifærni, auka sjálfstraust og öðlast hreyfivenjur sem geta nýst til frambúðar. Þjálfari verkefnisins er Árni Heiðar Ívarsson sem þarf vart að kynna en hann hefur áratugareynslu af einkaþjálfun, íþróttakennslu og fræðslu tengdri afþreyingu og hreyfingu. Hann hefur starfað bæði með börnum og fullorðnum og hefur djúpan skilning á mikilvægi þess að mæta fjölbreyttum þörfum þátttakenda.
Á æfingum verður einnig unnið með gildi íþróttafélagsins Vestra sem eru virðing, metnaður og gleði og börn frædd um mikilvægi félagslegrar samveru, þátttöku í hópefli og grunnstoðum almennrar lýðheilsu. Ekki síður mikilveg eru einkunnarorð verkefnisins sem eru Hreyfing & Fjör og bundnar eru vonir um að hér sé kominn grundvöllur fyrir langvarandi sambandi barna á grunnskólaaldri við hreyfingu sem heilsubót og fjör í góðum félagsskap.
Áhugasamir geta mætt á æfingar á ofangreindum tímum og fengið skráningarform þar.
Þann 16. janúar 2016 var haldinn stofnfundur íþróttafélagsins Vestra og fagnar félagið því nú 10 ára afmæli. Af því tilefni var efnt til samkomu í sal félagsins í Vallarhúsinu á Torfnesi þar sem kynnt var nýtt stuðningslag fyrir Vestra. Er það samið af þeim Þormóði Eiríkssyni, Ásgeiri Kristjáni Karlssyni, Elvari Orra Palash Arnarssyni og Kristjáni Sturlu Bjarnasyni. Þá var Hjalti Karlsson útnefndur heiðursfélagi Vestra en hann gegndi formennsku fyrstu árin og leiddi undirbúningsnefnd að stofnun félagsins.
Nú árið 2026 eru deildirnar orðnar 6 með tveimur nýjum deildum, Hjólreiðadeild Vestra og Lyftingadeild Vestra.
Einn af þeim þáttum sem efla styrk Vestra er auk hagræðingar, sameiginleg sýn. Veigamikill þáttur í starfi íþróttafélaga snýr nú sem endranær uppeldis og félagshlutverki. Auk þess að vera með sérlög er Vestri með skýrt afmarkaða jafnréttisstefnu, forvarnarstefnu og siðareglur. Gildi félagsins eru Virðing Gleði og Metnaður.
Félagsmenn og stjórnendur líta á það sem hlutverk Vestra að skapa umhverfi sem hvetur félagsmenn til að ná markmiðum sínum og skara fram úr í leik og starfi. Stjórnendur og aðstandendur Vestra íþróttafélags eru þess meðvitaðir að jafnhliða keppni og sigrum, þá er íþróttastarf uppeldisstarf. Þar eru iðkendum kennd gildi félagsins og þau viðhorf sem samfélagið vill halda á lofti.
Gísli Jón Hjaltason
Ísafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna árið 2025. Styrkirnir eru til handa foreldrum barna og unglinga á grunnskólaaldri sem eiga lögheimili í Dýrafirði, Súgandafirði og Önundarfirði og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Ísafjarðarbæ. Aðeins er veittur einn styrkur á hvert heimili á ári, óháð fjölda barna. Ekki er greiddur út styrkur til barna og unglinga sem eiga lögheimili í Skutulsfirði þar sem frístundarúta milli Skutulsfjarðar og Bolungarvíkur þjónar þeim.
Sótt er um styrkinn í gegnum Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar
Vestri er bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir frábæran sigur á Val, 1:0, í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli. Jeppe Peder­sen skoraði eina mark leiksins með frábæru skoti fyrir utan teig. Með sigr­in­um hefur Vestri tryggt sér þátttökurétt í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.
Nú á dögunum komu félagsgjöld inn í heimabanka félagsmanna Vestra. Tekið skal fram að um valgreiðslu er að ræða. Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn og leggja félaginu lið geta farið inn á heimasíðu félagsins, www. vestri.is, þar sem finna má hnapp á forsíðu merktur „Gerast félagi í Vestra". Skráningarform opnast þegar smellt er á hnappinn.
Félagsmenn sem hafa tök á eru hvattir til að leggja félaginu lið með því að greiða greiðsluseðilinn og styðja starfið með þeim hætti en tekjur af félagsgjöldum hafa verið nýttar í ýmis sameiginleg verkefni innan félagsins, s.s. rekstur á vefsíðu, kostnað vegna bókhalds og áskrift að Sportabler fyrir deildir félagsins.
Þeir sem ekki vilja vera félagsmenn geta sent póst á netfangið gjaldkeri@vestri.is eða sent skilaboð á Facebook-síðu félagsins (Vestri – íþróttafélag) og óskað eftir því að vera afskráðir. Krafan er valkvæð og hægt að fela hana í heimabankanum þar til hún fellur niður en fólk er eftir sem áður skráð í félagið nema það afskrái sig, eins og áður segir.
https://www.vestri.is/felagaskraning/
Ársskýrslu aðalstjórnar og deilda Vestra fyrir árið 2024 má finna hér ásamt ársreikningi 2024.
Aðalfundur íþróttafélagsins Vestra 2025 verður haldinn mánudaginn 28. apríl nk. Fundurinn fer fram í Safnahúsinu, Eyrartúni og hefst kl. 18:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
Dagskrá:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
Formaður félagsins gerir grein fyrir starfsemi aðalstjórnar á liðnu starfsári.
Gjaldkeri félagsins leggur fram til samþykktar og gerir grein fyrir reikningum félagsins fyrir liðið starfsár.
Ákvörðun félagsgjalds.
Fjárhagsáætlun félagsins lögð fram til samþykktar.
Lagabreytingar.
Kosningar:
Kosinn formaður.
Kosnir þrír stjórnarmenn til tveggja ára í senn.
Kosnir tveir varamenn til eins árs í senn.
Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.
Önnur mál.
Fundargerð upplesin og fundarslit.
Framboð til formanns aðalstjórnar og almennar tillögur skulu berast aðalstjórn eigi síðar en fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund félagsins á netfangið adalstjorn@vestri.is eða gjaldkeri@vestri.is
Íslandsmeistaramót Lyftingasambands Íslands var haldið laugardaginn 8. febrúar síðastliðinn í Hafnarfirði. Alls tóku 44 keppendur þátt í mótinu, 13 karlar og 31 kona. Þrír keppendur voru frá Vestra, þær Guðrún Helga Sigurðardóttir, Hjördís Ásta Guðmundsdóttir og Aldís Höskuldsdóttir.
Aldís Huld keppti í -76 kg. flokki og lyfti 73 kg í snörun og 90 kg. Í jafnhendingu og lyfti því samanlagt 163 kg. og hlut annað sætið í sínum flokki. Hjördís Ásta keppti í -87 kg. flokki og lenti í þriðja sæti í þeim flokki. Hún lyfti 50 kg í snörun og 70 kg í jafnhendingu samtals 120 kg. Guðrún Helga keppti í +87 kg. flokki og varð í fjórða sæti í þeim flokki. Hún lyfti 65 kg. í snörun og 85 kg. í jafnhendingu, samtals 150 kg.
Lyftingadeild Vestra hefur eins og sjá má á þessu eflst nokkuð og ánægjulegt að sjá hvað okkar konur eru að standa sig vel og skila flottum árangri. Næsta mót, Íslandsmeistaramót unglinga, fer fram 8.-9. mars nk. og verður Guðrún Helga meðal keppenda þar.