Íþróttafélagið Vestri - Blak
Laugardaginn 7 febrúar fór fram á Torfnesi, leikur í úrvalsdeild karla í blaki, þegar heimamenn í Vestra tók á móti vinum okkar í Aftureldingu.  Hér fyrir vestan er þetta lið Aftureldingar stundum kallað af gárungunum, Vestri Bé, því í liðinu eru þrír fyrrum leikmenn Vestra.
Fyrir leikinn voru liðin í 4 og 5 sæti í deildinni, Afturelding í því efra í spennandi toppbaráttu, með 34 stig en Vestri á lygnum sjó fyrir miðri deild með 19 stig.
Leikurinn var hin besta skemmtun, þrátt fyrir að augljóst væri að gestirnir mættu ákveðnir til leiks.
Fyrsta hrina var nokkuð jöfn til að byrja með, en í stöðunni 10-9 fyrir gestunum, sigu þeir fram úr, náðu mest 6 stiga forskoti og kláruðu hrinuna 25-21
Önnur hryna byrjaði svipað og sú síðasta, en þegar komið var fram yfir 10 stigin, settu gestirnir í túrbógírinn og einokuðu stigatöfluna.  Hrinunni lauk 25-12.
Í þriðju hrinunnu voru heimamenn búnir að spýta vel í lófana og leiddu hrinuna framan af.  Gestirnir náðu hinsvegar að jafna í stöðunni 12-12 og leiddu hrinuna eftir það með nokkrum stigum.  Spenna var því fram á síðasta stig, en gestirnir náðu þriðju hrinunni einnig, en nú með minnsta mun 25-23 og þar með leikinn 3-0.
Stigahæstir heimamanna voru Juan Escalona, með 10 stig og Sverrir Bjarki með 9 stig.  Stigahæstir gestanna voru svo Tomek Leik með 23 stig, og gömlu Vestrastrákarnir Hafsteinn Már með 13 stig og Antonio með 6 stig.
Á næstu helgi er Vestraliðið á faraldsfæti, en þeir sækja þá heim Þrótt í Neskaupstað og er það næst síðasta ferðalag tímabilsins.
Ungmennalið Vestra í blaki varð um helgina bikarmeistari í flokki karla 20 ára og yngri. Bikarkeppnin var spiluð að Varmá í Mosfellsbæ og hófst á fjögurra leikja undankeppni. Þar sigruðu Vestrastrákarnir í öllum sínum leikjum og töpuðu aðeins einni hrinu. Þessi árangur skilaði þeim í úrslitaleikinn þar sem þeir mættu sterku liði KA.
Í úrslitaleiknum mættu Akureyringar grimmir til leiks og unnu fyrstu hrinuna eftir upphækkun. Eftir það litu Vestramenn hins vegar aldrei til baka, unnu næstu þrjár hrinur nokkuð örugglega og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn.
Þetta Vestralið samanstendur af piltum á aldrinum 14 til 19 ára og fyrir marga þeirra var þetta síðasta mótið í unglingaflokki eftir að hafa um árabil skipað eitt allra sterkasta unglinga- og ungmennalið landsins.  Það er til marks um gott starf í yngri flokkum Vestra að allir piltarnir í bikarmeistaraliðinu hafa, þrátt fyrir ungan aldur, skilað sér upp í meistaraflokk þar sem þeir mynda nú kjarnann í úrvalsdeildarliði Vestra. Tveir þeirra spila raunar með öðrum úrvalsdeildarliðum, en hafa heimild til að spila með Vestra í U-20 leikjum.
Úrvalsdeildarlið Vestra á Íslandsmótinu kk í blaki, spilar sinn fimmta leik á tímabilinu seinna í dag, þegar liðið heimsækir topplið Hamars í Hveragerði.
Á þeim þremur vikum sem liðnar eru síðan tímabilið hófst, eru Vestrapiltar búnir að spila fjóra leiki og allir hafa þeir verið á móti liði sem heitir Þróttur.  Tveir fyrstu leikirnir voru heimaleikir á móti Þrótti Fjarðarbyggð, eins og fram kom í síðustu frétt.  Seinni tveir leikirnir voru svo útileikir á móti Þrótti Reykjavík.
Fyrri leikurinn á móti Þrótti R. var stórkostleg skemmtun sem endaði í oddahrynu.  Þar náðu okkar menn að standa sína plikt, og lönduðu sigri 15-12 eftir mjög jafna bráttu.
Seinni leikurinn var ekki alveg jafn skemmtilegur, lauk með sigri Þróttar 3-0.
Íslandsmótið í vetur er spilað í þremur umferðum.  Það er ástæðan fyrir því að spilaðir eru tvíhöfðar svokallaðir, stundum í heimaleikjum en hina stundina í útileikjum.
En okkar menn hafa byrjað tímabilið með prýði og standa ágætlega að vígi eins og sjá má á meðfylgjandi stigatöflu.  Rétt er samt að taka fram að liðin hafa spilað mis marga leiki, Vestri, Hamar og HK hafa spilað 4 leiki, flest hin liðin 3.
Aðrar blakfréttir eru þær helstar að helgina 25-26 október fer fram túnnering í neðri deildunum á Íslandsmótinu í blaki.  Kvennaliðið okkar sem spilar í 3ju deildinni í vetur og fer fyrsta mótið fram á Húsavík.
B-lið karla spilar í 2. deild og verður fyrsta mótið haldið hér á Ísafirði.  Viljum við hvetja heimamenn til að mæta og hvetja strákana okkar í baráttunni.
Karlalið Vestra í blaki hóf sitt sjöunda tímabil í efstu deild um helgina, þegar fulltrúar Austurlands, Þróttur í Fjarðarbyggð, lagði land undir fót og mættu okkar mönnum í Torfnesi.
Spilaðir voru tveir leikir sem voru hin mesta skemmtun, enda afar jafnir og háspenna á köflum.
Í laugardagsleiknum skiptust liðin lengst af á því að skora stig.  Fyrsta hrinan var þannig jöfn í stöðunni 10-10, 14-14 og 18-18.  Þá tóku heimamenn á sig rögg, náðu fjögurra stiga forskoti og skiptu út helminginn af liðinu.  Fyrsta hrinan endaði 25-22.  Önnur hrina var áþekk, jafnt í 4-4, 12-12 og 14-14.  En í stöðunni 19-18 fyrir Vestra, bættu heimamenn í og tóku 6 stig á móti einu stigi gestanna.  Sama er að segja um þriðju hrinuna, jafnt í stöðunni 2-2, 10-10 og 16-16.  Vestramenn áttu lokaorðin í hrinunni, með þremur síðustu stigunum og kláruðu hana 25-21 og leikinn þannig 3-0.
Stigahæstir í leiknum voru hjá Þrótti þeir Raul Garcia Asensio, með 16 stig, og Leonardo Aballay með 8 stig.  Hjá Vestra voru þeir Sverrir Bjarki með 11 stig og Benedikt og Adria með 8 stig hvor.
Sunnudagsleikurinn var enn jafnari, en þá mættu gestirnir ákveðnir á leikstað.  Fyrsta hrinan var þannig jöfn í stöðunni 3-3, 5-6, 8-8 og 13-13.  Gestirnir náðu þá að slíta sig aðeins frá heimamönnunum  og luku hrinunni með 4 stiga mun, 25-21.  Önnur hrinan var áþekk, þar sem liðin skiptust á að leiða.  Þannig náðu Þróttarar á einum tíma 5 stiga forskoti.  En jafnt var í stöðunum 4-4, 13-13, 19-19 og 21-21.  Vestramenn áttu svo lokaorðin í hrinunni og luku henni 25-22.  Þriðju hrinu leiddi Vestri nánast allann tímann, en Þróttarar komust yfir í stöðunni 9-8, annars leiddi Vestri og luku hrinunni 25-21.  Fjórðu hrinuna byrjuðu Vestrapiltar betur og leiddu megnið af tímanum og náðu all nokkru forskoti á tímabili, 9-3.  Þróttarar gáfust hinsvegar ekki upp og náðu að jafna í stöðunni 17-17.  Á endasprettinum voru Þróttarar sterkari og náðu að klára hana 25-23 og knýja fram oddahrinu.  Í oddahrinunni var Vestri sterkara liðið, og náðu að leiðna hana eftir stöðuna 3-3.  Eftir því sem leið á hrinuna tognaði heldur á milli og lokatölur oddahrinunnar voru 15-10 og Vestri vann því 3-2.
Tölfræði úr seinni leiknum lá ekki fyrir þegar fréttin var skrifuð.
Vinum okkar í Þrótti þökkum við fyrir komuna og óskum þeim góðar heimferðar.
Aðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2024, verður haldinn í Fræðslumiðstöð Vestfjarða miðvikudaginn 2. apríl og hefst hann kl. 20:00.
Samkvæmt lögum deildarinnar er dagskrá eftirfarandi á hefðbundnum aðalfundi:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Formaður blakdeildar gerir grein fyrir starfsemi deildarinnar á liðnu starfsári.  Gerð verður grein fyrir reikningum deildarinnar sem staðfestir hafa verið af kjörnum skoðunarmanni og gjaldkera aðalstjórnar og þeir bornir upp til samþykktar.
Reglugerðabreytingar.  Reikna má með að lögð verði fram tillaga um breytingar á reglugerð, sem snýr að fjölda stjórnarmanna.
Kosningar:
a) Kosinn formaður deildar til eins árs.
b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
Önnur mál.
Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.
Blakdeild Vestra hefur samið við þjálfarann Juan Manuel Escalona Rojas um tveggja ára framlengingu á samningi hans við félagið.
Juan kom sem leikmaður til Vestra haustið 2019, en frá haustinu 2020 hefur hann verið aðalþjálfari félagsins og hefur náð eftirtektarverðum árangri, ekki síst meistaraflokksliði karla. Meistaraflokkur karla er kominn í fremstu röð blakliða á Íslandi og hefur á undanförnum árum m.a. komist í úrslitaleik bikarkeppninnar og undanúrslit Íslandsmótsins. Þá hafa yngri flokkar Vestra unnið Íslands- og bikarmeistaratitla, auk deildarmeistaratitla í neðri deildum. Allmargir leikmenn Vestra hafa einnig verið valdir í landslið Íslands, bæði ungmennalandslið og A landslið karla. Sjálfur hefur Juan tvisvar sinnum verið kosinn þjálfari ársins af Blaksambandi Íslands.
Það ríkir því eðlilega mikil ánægja með það innan Blakdeildar Vestra að Juan skuli vera tilbúinn til að helga félaginu starfskrafta sína og halda áfram þeirri uppbyggingu sem hann og annað Vestrafólk hefur staðið fyrir síðustu ár.
Boðað er til framhalds-aðalfundar blakdeildar Vestra, miðvikudaginn 2 október nk, kl 18:00.
Fundurinn fer fram á kaffistofu Ístækni, við Sindragötu 5.
Á dagskrá eru eftirfarandi tvö atriði:
1.  Kosning í stjórn.
2.  Önnur mál.
Félagsmenn og foreldrar iðkenda eru hvattir til að fjölmenna.
Þá eru félagsmenn einnig minntir á að blakdeild Vestra getur ekki haldið úti öflugu starfi, nema með þáttöku félagsmanna í stjórnarstörfum.
Ísfirðingurinn Hafsteinn Már Sigurðsson mun á komandi tímabili spila með karlaliði Habo í sænsku úrvalsdeildinni í blaki, en gengið var frá samningum um það í síðustu viku.
Habo er 12 þúsund manna bær í sunnanverðri Svíþjóð, staðsett við Vatten, sem er eitt af stærstu stöðuvötnum í landinu.  Blaklið Habo er að mestu byggt upp á ungum heimamönnum en hefur engu að síður staðið sig vel í Sænsku deildinni og endað í topp 4 í deildinni síðustu tímabil.
Hafsteinn Már er uppalinn í Vestra í gegnum yngriflokka, en byrjaði að spila með karlaliðinu tímabilið 2015-16, á fyrsta tímabili Vestra í næst efstu deild í blaki.  Fjórum árum síðar hóf Vestri þátttöku í úrvalsdeild, eftir að hafa unnið 1. deild tvisvar.  Með Vestra hefur Hafsteinn Már spilað allar stöður á vellinum, en hefur undanfarin ár spilað stöðu Dió og hefur sem slíkur verið kjörinn tvisvar í draumalið úrvalsdeildarinnar síðustu fjögur ár og var eftir síðasta tímabil valinn besti íslendingurinn í deildinni.
Með Hafstein Má sem fyrirliða, náði úrvalsdeildarlið Vestra tvisvar að enda í 4 sæti í deildinni og komast jafn oft í undanúrslit í Kjörísbikarnum.  Síðustu tvö tímabil hefur Hafsteinn Már verið í námi fyrir sunnan og spilað með úrvalsdeildarliði Aftureldingar og spilaði í vor til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á móti Hamri.
Hafsteinn Már hefur spilað með Íslenska landsliðinu frá árinu 2016, þá fyrst með U17, en hefur síðustu 3 ár spilað með A-landsliðinu og verið með öflugustu leikmönnum liðsins.
Vegna mjög vondrar veðurspár hefur stjórn blakdeildar Vestra ákveðið að fresta áður auglýstum aðalfundi um eina viku.
Ný dagsetning er því mánudaginn 25 mars, kl 17.00 í Vallarhúsinu.
Dagskráin er sú sama og auglýst var á dögunum.
Aðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2023, verður haldinn í Vallarhúsinu við Torfnesvöll mánudaginn 18. mars og hefst hann kl. 17:00.
Samkvæmt lögum deildarinnar er dagskrá eftirfarandi á hefðbundnum aðalfundi:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Formaður blakdeildar gerir grein fyrir starfssemi deildarinnar á liðnu starfsári.
Gert verður grein fyrir reikningum deildarinnar sem staðfestir hafa verið af kjörnum skoðunarmanni og gjaldkera aðalstjórnar og þeir bornir upp til samþykktar.
Reglugerðabreytingar.  Reikna má með að lögð verði fram tillaga um breytingar á reglugerð, sem snýr að fjölda stjóranrmanna.
Kosningar: a) Kosinn formaður deildar til eins árs. b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs. c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
Önnur mál.
Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.